Um Bókhaldsstofuna
Bókhaldsstofan ehf. hefur veitt fyrirtækjum og einstaklingum þjónustu á sviði bókhalds og skattskila síðan árið 1996. Við leggjum áherslu á persónulega og faglega þjónustu og að vera traustur bakhjarl fyrir okkar viðskiptavini.
Við önnumst færslur fjárhagsbókhalds fyrir fyrirtæki og einstaklinga og bjóðum jafnframt upp á þjónustu við reikningsskil, ársuppgjör og skattskil. Einnig tökum við að okkur afmörkuð og tímabundin verkefni, svo sem ársskýrslur og skattaframtöl.
Þjónustan okkar hentar fyrirtækjum af ýmsum stærðum, sem og einstaklingum, bæði með rekstur og án.
Árið 2024 tóku bræðurnir Björn og Þórður Örn Guðbjörnssynir við rekstri Bókhaldsstofunnar. Þeir skipta með sér verkefnum eftir sérsviðum og koma saman með yfir 80 ára starfsreynslu í bókhaldi og þjónustu við fyrirtæki og einstaklinga.
Bókhaldsstofan ehf. er til húsa að Bæjarhrauni 10 í Hafnarfirði og er aðili að Félagi bókhaldsstofa.
